
Námskeið í tölvuleikjagerð fyrir byrjendur
2. - 18. Júlí
Sérstakt kynningartilboð 39.900 kr
Uppbygging námskeiðsins
Á þessu námskeiði verður farið í grunninn á Unreal Engine fyrir þá sem langar að stíga sín fyrstu skref í tölvuleikjagerð. Hvort sem þú ert með hugmynd af næsta Fortnite eða hefur áhuga á tölvuleikjum sem listformi þá er sterkur grunnur undirstaðan til að ná takmarkinu.
Námskeiðið er hannað fyrir byrjendur þannig að það þarf engan grunn í forritun eða listsköpun.
Á námskeiðinu verður farið yfir:
Notendaviðmót Unreal Engine og hvernig á að byggja stafræna heima
Undirstöður í ljósi, litum og hljóði
Hreyfingu og hegðun
Hvernig byggja skal einfaldan tölvuleik
Eftir námskeiðið mun nemandinn hafa náð sér í sterkann grunn til að byggja upp sínar eigin hugmyndir.
Námskeiðið er kennt yfir þrjár vikur þar sem haldnir eru tveir, 90 mínútna fyrirlestrar á viku, þriðjudaga og fimmtudaga frá 19:00 - 20:30. Áhersla er lögð á þáttöku nemenda á fyrirlestrunum en allir tímarnir eru teknir upp og gerðir aðgengilegir nemendum.